30.3.2010 | 09:14
Hitt og þetta..!!!
Jájá hér á þessu svæði er einhver bloggstífla,og tölvuleti og,og svoleiðis..
Ýmislegt hefur nú gerst í næsta nágrenni við mig þar á meðal fór Eyjafjallajökull að gjósa í allri sinni dýrð,og var fólk hálf bilað og vildi komast þarna upp hvernig sem færi..Ég lét og læt mér næja að sjá þetta úr fjarlægð og er það nú ekki verra,ég er trúlega með svo lítið hjarta að ég vil nú barahalda mig niður á sléttunni,en ég fór nú inn í fljótshlíð á sunnudaginn og þar var eins og á útihátíð..
Þarna sést aðeins í eldin...
Þessar myndir eru teknar beint á móti Húsadal og ef vel er að gáð sjást ljósin í húsunum þar...
Annars er nú bara allt í góðu hér hjá mér
Set inn hérna skemmtilega mynd af vinkonu minni en við vinkonurnar skruppum í sveitaferð hér eina helgina og fórum í fjós,og var það mjög skemmtilegt,reyndar urðu sumar skelfingu lostnar haha og harðneituðu að fara inn og fá í sig fjósalykt en það tókst að koma öllum inn í ilmin að lokum
Þær eru nú ansi fallegar þessar
og voru alveg til í að japla aðeins á úlpunum okkar...
Ungur herramaður er hér stundum á föstudögum við eigum okkar daga saman og gerum eitthvað sniðugt þó aðalega spilum við,síðast sáðum við sumarblómum,og var hann ansi duglegur við það litli pjakkurinn hann frændi minn
Hér er verið að byggja,kastala
Hér er búið að vera leiðynda veður í nokkra daga kallt og mikið ryk það hefur verið erfitt að fara út það fyllast öll vit af ryki ójjj eins og það er nú skemmtilegt að sjá ekkert og briðja þennan óþerra
Nú eru að koma stór fríhelgi páskar með allri sinni dýrð...
þetta er gott í dag....
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook


addabaldurs
alltaf
annaragna
bestalitla
bestilitli
bifrastarblondinan
binnan
brynja
estersv
gudruni
gutti
heidihelga
ijt
izelisa
josira
komaso
leifur
loathor
maggadora
midtunsheimilid
olafurfa
osland
siggimaggi
skagstrendingur
snorrithor
stinamin
vogin







Athugasemdir
sæl Gulla mín og takk fyrir innlitið hjá mér. Flottar myndir sem þú hefur náð þarna úr Fljótshlíðinni. Fæ lánaða eina
og eigðu góða páskahelgi...
josira, 31.3.2010 kl. 10:53
Frábærar myndir.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 10.4.2010 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.