Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
27.12.2011 | 17:47
Bara smá jólakveðja til ykkar allra ..
Hef nú lítið verið hér,enda eitthvað annað sem drepur fyrir mér tíman td,fésið eins og hjá mörgum öðrum..
Það sem ég vildi bara sagt hafa er GLEÐILEG JÓL,og hafið það gott kæru bloggvinir
12.10.2010 | 10:26
Urrr bara..
Var búin að blogga fullt og setja inn myndir,en hvað gerðist,ha það veit ég ekki það hvarf bara allt,og er ég ekki að fíla svoleiðis,en sem betur fer er ég í þokkalega góðu skapi í dag og ætla mér að halda því áfram og ekki að láta einhvert tölvuapparat eyðileggja daginn fyrir mér ónei,ónei...
Reyniviður skartar sínum fallegu haustlitum..
Skrapp í Munaðarnes í síðustu viku,skoðai haustlitina,og rak augun í gamla skólann minn,þarna lærði ég að elda og hannyrðir ýmiskonar,Þetta er Varmaland..
Ætla að setja inn fl myndir og þá bara í albúm..
Veit ég veit ég er löt að tjá mig hér inni,en kannaski á það eftir að breytast hvur veit sjáum til með það..
31.8.2010 | 14:46
Hitt og þetta!!!!
Góðan daginn hér,humm sé það að ég hef ekkert verið að þvælast hér um sóðir síðan í humm ööö apríl og þá var skrímslið á fullu að spúa frá sér ógeði,og sem betur fer heldur hann kjafti núna og verður vonandi næstu 100 árin
Annars er nú bara allt gott að frétta úr sveitinni margt gerst og ýmislegt á daga mína drifið tja því er ekki að neita,en held nú samt að ég ætli nú ekkert sérstaklega að fara að telja það upp hér,en sumarið er að líða undir lok með sitt annars frábæra veður,fannst stundum of heitt fyrir mig,líkar ekki mikill hiti og sól en það er bara ég
Ég skrapp til Vestmanneyja um þjóðhátíðaina bara gaman að ferðast með Herjólfi núna,maður rétt nær að drekka einn kaffibolla,þjóðhátíðin var góð allir dagar nema sunnudagurinn allt of mikið af fólki ég var bara hálfpartin lost þarna fann engan og sá engan bara,en samt fann ég alltaf fólkið í hvíta tjaldinu sem vinafólk mitt var með,stoppaði rúma viku í eyjum finnst alltaf gott að komast til eyja og hitta vini mína þar..Og af því mér líður svo vel í margmenni eða hitt þó,þá skoðaði ég menninganótt í fyrsta og örugglega síðasta skipti leist ekkert á þann mannfaganað,enda komin úr miðbænum fljótlega eftir miðnætti úff...
Jæja nú verð ég að hætta þarf að ná í börn á leikskóla og skóladagheimili fyrir vinafólk mitt,
Hafið það gott ar til næst.. Á eftir að skifa meira sko
19.4.2010 | 18:03
Halló!!!!
Veit ekki hvað ég ætti svosem að blogga um þó miklið sé að gerast hér fyrir austan hjá okkur þá er svo mikið talað um það í öllum fjölmiðlum að ég ætla ekkert að blása mig yfir því,reyndar ætla ég að setja inn nokkrar myndir sem ég tók um helgina,heiman frá mömmu og frá Gaddstaðaflötum,flottar myndir...Eitt í sambandi við þetta allt saman af hverju getur fólk ekki farið eftir tilmælum almannavarna og lögreglu að vera ekki að reyna að fara þarna,ó nei eyrun vel stífluð ekki heyra neitt,....En hér koma myndirnar
....
Þessi er tekin frá Ægissíðu laugard.17/4.2010. það glampar vel á jökullinn.
Hérna á þessari sést askan sem er að læða sér yfir Eyfellinga ....Þangað til næst farið vel með ykkur
Bless
30.3.2010 | 09:14
Hitt og þetta..!!!
Jájá hér á þessu svæði er einhver bloggstífla,og tölvuleti og,og svoleiðis..
Ýmislegt hefur nú gerst í næsta nágrenni við mig þar á meðal fór Eyjafjallajökull að gjósa í allri sinni dýrð,og var fólk hálf bilað og vildi komast þarna upp hvernig sem færi..Ég lét og læt mér næja að sjá þetta úr fjarlægð og er það nú ekki verra,ég er trúlega með svo lítið hjarta að ég vil nú barahalda mig niður á sléttunni,en ég fór nú inn í fljótshlíð á sunnudaginn og þar var eins og á útihátíð..
Þarna sést aðeins í eldin...
Þessar myndir eru teknar beint á móti Húsadal og ef vel er að gáð sjást ljósin í húsunum þar...
Annars er nú bara allt í góðu hér hjá mér
Set inn hérna skemmtilega mynd af vinkonu minni en við vinkonurnar skruppum í sveitaferð hér eina helgina og fórum í fjós,og var það mjög skemmtilegt,reyndar urðu sumar skelfingu lostnar haha og harðneituðu að fara inn og fá í sig fjósalykt en það tókst að koma öllum inn í ilmin að lokum
Þær eru nú ansi fallegar þessar
og voru alveg til í að japla aðeins á úlpunum okkar...
Ungur herramaður er hér stundum á föstudögum við eigum okkar daga saman og gerum eitthvað sniðugt þó aðalega spilum við,síðast sáðum við sumarblómum,og var hann ansi duglegur við það litli pjakkurinn hann frændi minn
Hér er verið að byggja,kastala
Hér er búið að vera leiðynda veður í nokkra daga kallt og mikið ryk það hefur verið erfitt að fara út það fyllast öll vit af ryki ójjj eins og það er nú skemmtilegt að sjá ekkert og briðja þennan óþerra
Nú eru að koma stór fríhelgi páskar með allri sinni dýrð...
þetta er gott í dag....
8.3.2010 | 18:05
Megrunarkúr sem klikkar ekki!!!!
Megrunarkúr sem klikkar ekki!!
Vandamálið með flesta megrunarkúra er að þú færð ekki nóg að borða (sveltikúrinn), fæðið er of einhæft (bananakúrinn) eða þú ferð á hausinn (nautalundakúrinn). Þetta hefur þær afleiðingar að fólk svindlar í megruninni eða hættir eftir 3 daga. En nú hafa amerískir sérfræðingar komið fram með smábarnakúrinn og íslenskir starfsbræður þeirra aðlagað hann okkar aðstæðum. Þú hefur tekið eftir því að öll tveggja ára börn eru grönn. Nú er lykillinn að velgengni þeirra á þessu sviði öllum aðgengilegur. Hafðu samband við lækni áður en þú byrjar á þessum kúr, annars þarftu að fara til læknis að honum loknum. Gangi þér vel.
1. dagur.
Morgunmatur: Eitt hrært egg, ristuð brauðsneið með appelsínumarmelaði.
Borðaðu tvo bita af egginu, notaðu ekki gaffal, hentu restinni af egginu á gólfið. Taktu einn bita af brauði, smyrðu síðan marmelaðinu yfir andlitið og fötin þín.
Hádegi. Fjórir vaxlitir (hvaða litur sem er), handfylli af kartöfluflögum og eitt mjólkurglas, drekktu 3 mjólkursopa og helltu restinni niður.
Kvöldmatur. Nagaðu blýantsstubb, gleyptu tvær krónur og gyllta tölu. 4 sopar af flötu Sprite.
Kvöldsnarl. Hentu ristaðri brauðsneið á eldhúsgólfið.
2. dagur.
Morgunmatur. Taktu brauðsneiðina frá því í gærkvöldi upp af eldhúsgólfinu. Drekktu úr einu vanilludropaglasi og borðaðu eina túpu af grænmetiskrafti.
Hádegi. Hálfur varalitur - Pulsating Pink? og lófafylli af Purina hundamat (valfrjálst bragð). Einn ísmola eftir vali.
Eftirmiðdagur. Sleiktu stóran sleikjó þar til hann verður klístraður, farðu með hann út og misstu hann í drulluna. Taktu hann upp og sleiktu hann þar til hann er hreinn aftur. Taktu hann þá inn aftur og misstu hann á góða ullarmottu.
Kvöldmatur. Troddu litlum stein eða baun upp í vinstri nösina á þér. Helltu applsínu-Svala yfir kartöflumús og borðaðu með skeið.
3. dagur
Morgunmatur: Tvær pönnukökur með miklu sýrópi, borðaðu aðra með fingrunum, klesstu síðan fingrunum í hárið á þér. Mjólkur-glas, drekktu helminginn, settu hina pönnukökuna ofan í glasið. Eftir morgun-mat skaltu taka sleikjóinn upp af ullarmottunninni, sleikja af kuskið og setja síðan sleikjóinn á setuna á góðum hægindastól.
Hádegi. Þrjár eldspýtur, hnetusmjörs- og sultusamloka. Hræktu nokkrum bitum af henni á gólfið. Helltu mjólkurglasi á borðið og sötraðu það upp.
Kvöldmatur. Taktu upp brauðsneiðina frá því í gærkvöldi og fáðu þér einn bita. Full skál af ís, lófafylli af kartöfluflögum, dálítið af rauðu púnsi. Reyndu að láta eitthvað af púnsinu frussast út um nasirnar á þér.
4. dagur.
Morgunmatur. Fjórðungur af tannkremstúpu, gerðin skiptir ekki máli, biti af handsápu, ein ólífa. Helltu mjólkurglasi yfir kornflöguskál og hálfan bolla af sykri. Þegar kornflögurnar eru gegnumblautar, drekktu þá mjólkina og gefðu hundinum kornflögurnar.
Hádegi. Borðaðu brauðmola af eldhús- og borðstofugólfinu. Finndu sleikjóinn og kláraðu hann.
Kvöldmatur. Glas af spaghetti og kakómalti. Skildu kjötbolluna eftir á diskinum. Smávegis augnbrúnalitur í eftirrétt.
**ÞETTA KLIKKAR EKKI EF ÞÚ FYLGIR FYRIRMÆLUM KÚRSINS;-D**
Ég ætla að skella mér á þennann.... bwahahahahahahaha
22.12.2009 | 09:14
Það er nefnilega það!!!!
Ég held að ég hafi týnt sjálfri mér haha það er eiginlega nokkuð ljóst,sá að ég hef ekkert bloggað síðan 1/11 og þá ætlaði ég að vera ofur dugleg og blogga daginn eftir,en í dag er komin 22 des alveg óskiljanlegt
og jólin nálgast heldur betur,og áður en við vitum verður allt stressið liðið...Ég er búin að vera að passa kreppu-jólamarkað núna síðan um miðjan nóv,assgoti gott bara,það er víst næstum alveg sama hvar ég sit á daginn ,þetta var fínt svona fyrst alltaf að rápast fólk inn og ég hitti marga,en hitti fáa núna,það er svona einn og einn sem slægist þarna inn,það yrði kannski troðið ef ég myndi bjóða upp á snaps,þá myndi fólk kannski kaupa meira hoho,en þetta er að verða búið tveir dagar enn eða einn og hálfur...Svo er það nammi dagur á morgun eða er það ekki humm SKATAN,ætla að skreppa á Kanslaran með einhverjum hluta af fjölskyldunni og borða skötu,er reyndar búin að smakka hana núna nýlega
Ætlið þið að borða skötu kæru bloggvinir ???
Gaddur Gríms er búin að koma sér fyrir núna,eða heitir hann kannski kuldaboli,ekki er svosem frostið mikið bara þessi andsk,vindkæling.....
Smá grín í lokin

Búin að skrifa á alla pakkana,baka jólakortin og pakka inn smákökunum......Skál..
Kveð að sinni,Gulla bloggletingi
1.11.2009 | 23:06
Hmmm
Ég verð víst að viðurkenna að ég hef ekki verið sú duglegasta hér undanfarið,hef bara ekkert verið neitt dugleg svona almenn,bara verið hundlöt
mjög óvanalegt að ég sé í einhverri svona holu,og því segi ég nú bara hingað og ekki lengra,ég er farin....
Er eiginlega ekkert með það á hreinu hvað ég ætla að bulla hér inn,hausin er auðitað tómur svosem ekkert nýtt haha,en ég er nú samt vön að geta skrifað smá en ekki núna,,,ætla að geyma þetta til morguns eins og sá lati hehe..............Jú ég verð hér á morgun!!!!!!!!!!!!! alveg satt,,,en ég er nú viss um að ykkur er slétt sama hvort ég blogga eitthvað hér á morgun eða ekki...
Sæl að sinni,sagði Gulla með sitt beyglaða minni
18.9.2009 | 10:27
Er að hugsa!!!!
Er að hugsa núna hvað lengi enn verður þessi rigning,það er búið að rigna stanslaust eiginlega í hálfan mánuð ójjjj,allt orðið blautt og subbulegt,jú ég sé að það er að koma haust,sést best á trjánum allt að fjúka eða rigna niður,,ekki langar mér nú mikið í réttirnar á morgun ef það verður svona RIGNING
ekki mikið gaman að því ónei.ónei..
Setti þessa mynd bara inn svona gamni...
En af mér er að frétta að ég er búin að vera hálf dauð úr aumingjaskap,ekkert gert,bara setið í mínu svitakófi hehe,en nú er ég búin að taka gleði mína á ný og búin að reka svitakófið á brott gekk ekki vel en tókst samt
gef sjálfri mér rós í hnappagatið fyrir það,
....
Nú ef ég geri ekkert í mínum málum hver gerir það þá ég bara spyr???
Jæja nóg af röfli..Hér eru réttir á morgun Reyðavatnsréttir,hugsa nú bara að ég fari ekki í sjálfar réttirnar,fer kannski frekar á réttarballið ef þannig liggur á mér,keyri fram hjá þessum réttum alla daga á ferð minni með matarbakkana,og ég er orðin hundleið á þessum vegi þarna uppeftir,ekkert nema holur sem eru auðvitað fullar af vatni,ef ég ætla að krækja framhjá einni holu lendi ég hundrað holum,þannig að þið getið ýmindað ykkur hvernig bíllinn minn lítur út hann á sko að vera rauður en er þokkalega vel brúnleitur púffff
og til að kóróna þetta þá er ekkert ÞVOTTAPLAN á Hellu,það var tekið þegar þetta blessaða hringtorg var gert,næsta þvottaplan er á Hvolsvelli,eða þá á Selfossi,og þvílík heppni þá þarf ég að fara á Hvolsvöll í dag,ég get ekki sagt að mér hlakki til þeirra ferðar,er að fara að hitta konu hjá féló en hún er víst minn yfirmaður í liðveislunni,og er okkur búið að lenda saman allavega einu sinni og ég hef aldrei séð þessa konu,sem hakkar mig í sig eins og ekkert sé og sjálfsagðara,en það sauð uppúr hjá mér síðast,þess vegna er þessi fundur,gaman að vita hvort ég verð atvinnulaus eða ekki í dag
...
Jæja læt þetta gott heita að sinni,,góða helgi allir sem einn..
25.8.2009 | 16:43
komin aftur!!!!!
Ég er nú búin að taka mér ágætis bloggfrí núna í sumar,og ef ég á að segja alveg eins og er hef ég bara ekki mikið verið fyrir framan tölvuna,humm veðrið bauð bara hreinlega ekkert upp á það í sumar...
É er aðeins búin að flakka út og suður en aðalega hér í kring,fór líka í 10 daga til eyja alltaf
mjög gaman að koma til eyja,svo voru leiðinleg töðugjöld hér fyrir hálfum mánuði,það er allavega mitt álit og fl....
set bara inn nokkrar heimildarmyndir af flakki mínu í sumar...
Þetta er í fjölskferð í Miðdal,og þarna eru börn og fullornir að grilla sykurpúða,mikið fjör og miiiiikið gaman...
Ég fór til eyja,og hvað haldið þið,var ekki Þjóðhátíð 5 dögum eftir komu mína
Ég rak augun í þessa óboðnu gesti sem voru búnir að koma sér vel fyrir í garðinum heima á æskustöðvunum,svo var minna bú annars-staðar,þeir fengu svefnin langa ekki alls fyrir löngu varð allavega að gerast áður en þeir yrðu árásargjarnir,þetta eru alveg mögnuð fyrirbæri þessi geitungabú,snildarverk!!!
Og hér er hann Simbi eyjakötturinn sæti og skemmtilegi,hann var alltaf með band sem hann dró út um allt til að reyna að fá fólk að leika við sig,og auðvitað lék ég mikið við þennan skemmtilega kött...
Auðvitað var skroppið aðeins í Gaujulund að skoða alla dæyrðina þar....
Jæja nóg komið af myndum myndi ég segja..Er búin að vera í fríi í allt sumar,og er nú að spá og spekúlera í því að fara að byrja í liðveislunni aftur og er að hugsa um að skreppa með dömuna á blómstrandi daga í Hveragerði,það verður örugglega voðalega gaman ef það verður þá ekki rigning...
Læt þetta þá gott heita í dag,og hver veit nema ég fari að verað duglegri hér,ekki gott að segja
Hafið það gott allir



addabaldurs
alltaf
annaragna
bestalitla
bestilitli
bifrastarblondinan
binnan
brynja
estersv
gudruni
gutti
heidihelga
ijt
izelisa
josira
komaso
leifur
loathor
maggadora
midtunsheimilid
olafurfa
osland
siggimaggi
skagstrendingur
snorrithor
stinamin
vogin






