Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
2.4.2008 | 17:15
Brandari:
Brandari frá frú Öddu
það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.
> Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá
> dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa
> heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig
> kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.
>
> Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst
> gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
> Á því stóð aðeins Myllukökur Myllubrauð.
> Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók
> hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu
> síðar um kvöldið.
> En þar stóð Myllukökur Myllubrauð
ávallt seðjandi.
> Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur
> sinni, henni væri vel sinnt.
>
> En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar
> til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
> Þar stóð aðeins Ingvar og Gylfi. Kella var nú fljót að leita að
> Dagblöðunum og fann að lokum
> auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð Nýi rúmgaflinn frá okkur
> King size og extra langur.
> Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari
> dóttur sinni.
>
> Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks
> kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
> Í bréfinu stóð aðeins eitt orð Flugleiðir.
> Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á
> endanum fann hún eina.
> En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð:
> Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!
2.4.2008 | 09:06
Mannanöfn og fl.
Stúlknanöfn Drengjanöfn
Eggrún Bogey Beinteinn Búri
Oddfreyja Örbrún Dufþakur Dreki
Dúfa Snót Hildiglúmur Bambi
Ljótunn Hlökk Fengur Fífill
Himinbjörg Hind Gottsveinn Galdur
Randalín Þrá Grankell Safír
Baldey Blíða Kaktus Ylur
Bóthildur Brák Þorgautur Þyrnir
Loftveig Vísa Melkólmur Grani
Þúfa Þöll Ljótur Ljósálfur
Þjóðbjörg Þula Náttmörður Neisti
Stígheiður Stjarna Hlöðmundur Hrappur
Skarpheiður Skuld Hraunar Grani
Kormlöð Þrá Ráðvarður Otur
Ægileif Hlökk Reginbaldur Rómeó
Venus Vígdögg Kópur Kristall
Hugljúf Ísmey Þangbrandur Þjálfi
Ormheiður Pollý Sigurlás Skefill
Geirlöð Gytta Þjóðbjörn Skuggi
Niðbjörg Njóla
Þetta eru nýjust nöfnin sem leyfð eru hjá mannanfannefnd.
Hugsið ykkur eftir svona 20,30, 40 ár hjá einhverju fyrirtæki þegar fólk
veður beðið um að hafa samband við Niðbjörgu Njólu á símanu eða Kaktus Yl
þjónustufulltrúa, Venus Vígdögg fjármálastjóra nú eða sjálfan formanninn
Náttmörð Neista.
Skrautlegt ekki satt.
Er það nema von að maður veltir fyrir sér tilgangi mannanafnanefndar sem á
meðal annars að koma í veg fyrir að börn beri nöfn sem er þeim til ama .
Nú er mín orðin eitthvað mjög skringilega orðin tja kvöldsvæf fór að sofa 22.30 eða eiginlega kl 21.00 vaknaði bara til að koma mér á wc og hátta mig í rúmið kl.22.30.og svaf eins og ungabarn til 07.00 í morgun,,þetta er skooooo mjög óvanalegt því ég fer aldrei að sofa fyrr en eftir miðnótt og á erfitt með að vakna kl.09.00
Í gær kom Konni,vinur hans og mamma,og auðvitað komu þau ekki tómhent eiginlega klifjuð af göfum,gaman að því.Skruppum á rúntin á flotta milla kagganum sem Konni var á..
En best að fara að koma sér út úr húsi er að fara í sjúkraþjálfun,ég held að hún verði örugglega ánægð með löppina á mér það er öll bólga á undanhaldi jibbbbbbý sem betur fer,þá losna ég kannski við að heimsækja minn sérfræðing,þó það sé yfirleitt gaman að hitta karlin,en þá tek ég samt enga áhættu núna,því að mig grunar að annaðhvort verði það stóra ljóta sprautaneða bara aðgerð og ég má bara ekkert vera að því,mikið að gera frammundan,enda finn ég voðalega lítið til nema á kvöldin....Jamm,jamm..´Já ég var að fara í sjúkraþjálfun haha ég sko sma gaga
1.4.2008 | 16:09
Viðvörun á vínflöskum.
Nú er verið að hanna viðvörunarmerki í Bandaríkjunum til að setja á áfengisflöskur.Ljósrit af nokkrum tillögum fóru á flakk svo hér má sjá sýnishorn af því sem Bandaríkjamenn ætla hugsanlega að setja á allar vínflöskur..
1.Þú átt á hættu að dansa eins og fífl ef þú drekkur úr þessari flösku.
2.Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú segir sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur,þar til vini þína langar mest til að berja þig.
3.Neysla áfengis getur orðið til þess að þú"þegir þlutina þvona",
4.Neysla áfengis getur komið þeirri ranghugsun inn hjá þér að fyrrverandi elskhugar þrái að heyra í þér klukkan fjögur að morgni.
5.Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú hafir ekki hugmynd um hvar nærbuxurnar þínar eru niðurkomnar.
6. Neysla áfengis getur orðið til þess að þegar þú opnar augun morguninn eftir sjáir þú eitthvað sem vekur þér ótta(eitthvað sem þú getur ómögulega munað hvað heitir).
7.Neysla áfengis getur valdið því að þú teljir þig miklu laglegri,sterkbyggðari og gáfaðri en þann sem ætlar að berja þig..............
Þá hafið þið það hahaha
1.4.2008 | 15:57
Mikilvægar upplýsingar
MJÖG MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR!!!!
Nýjar rannsóknir sýna að konur sem drekka of lítið af víni eiga á hættu að fá sjóntruflanir. Lýsir þessi sjúkdómur sér með því að augun rykkist til og allt verður ógreinilegt og eins og á hreyfingu.Þetta er mjög áberandi þegar horft er á tölvuskjá. Allar konur sem taka eftir því að hafa þessi einkenni ættu að taka sér frí frá vinnu og drekka meira vín. Ef einkenninn eru viðvarandi þá þarftu að skipta um víntegund...........
30.3.2008 | 21:21
Sandur
Hér er búið að vera ryk og sandur í loftinu síðan fyrir helgi og eiginlega mjög vont að fara út maður bryður sand og fær þetta ofan í öndunarfærin sem er ekki gott allavega ekki fyrir mig,með minn atsmaenda get ég ekki sagt að ég hafi verið mikið á ferðinni þessa helgina,skrapp til Diddu á föstudagskv.alltaf fjör í kringum okkur kellurnar,að vísu gisti ég þar,því við fengum okkur örlítið í tána,og ekki var hægt að keyra heim svoleiðis á sig komin neinei ussss það má ekki...En ég get sagt að ég hafi grætt á því að gista hjá Diddu,því að krúttið hann Siggi bróðir hennar kom til hennar á laugardagsmorguninn,og þessi elska skoðaði bílin minn,og takk Siggi það er allt annað að opna allar hurðir og skrúfa níður rúður..Ekki hefur hræða hvað þá fuglahræða sést hér engin kom að heimsækja mig,og var það bara allt í lagi,hafði það bara rólegt og gott,kíkti aðeins á mömmu í gærkvöldi,hún var hálf slöpp.Kidda ætlaði að gista hjá henni,og aftur í nótt,þær eru góðar saman vinkonurnar..
Svo um næstu helgi verður vonandi gaman þá er KARTÖFLUBALLIÐ,ég hef aldrei farið alltaf eitthvað komið upp á,en við vinkonurnar ég og Didda erum að spá í að skella okkur,ásamt reyndar slatta af öðrum kellum sem ég er ekkert að telja upp hér..mér skilst að það sé ógurlega gaman á þessum böllum,þá er bara að bíða og sjá haha...
Jæja ætla að fara að horfa á cold case á stöð 2.
Eigið góðar stundir.
28.3.2008 | 20:05
Vitið hvað ég fann í U.S.A.
27.3.2008 | 18:11
Smá fikt,
26.3.2008 | 19:34
Einn góður
Maðurinn var að klæða sig úr fyrir nóttina,leit á gráu bringuhárin sín og sagði:Nokkur grá hár í viðbót og ég fer á eftirlaun.Þá heyrist í kerlingunni:Líttu lengra niður,þá færðu örorkubætur
Á ég að tjá mig eitthvað meira,hef nú eiginlega bara ekkert til að tjá mig um,nema ég er að kafna úr kvefi sem ég hafði að ná mér í um páskana
Er eiginlega búin að afreka mestlítið í dag,fór lítið fyrir því sem ég ætlaði að gera í dag,jæja það kemur annar dagur eftir þennan,vonandi sem betur fer
Linda ein sp.hefur þú lesið dagblaðið í dag??? Það er viðtal við biðilin þinn listamanninn,hann segist eiga hauskúpuna,eða höfuðskálina,
Átti skemmtilegt spjall við Kormák í síma í dag,hann sagði mér að við værum kannski bleik fræ,og fíll sveimandi yfir okkur,en við bara vissum það ekki,hann ætlar að komast að þessu þegar hann fer í bíó og sér þarna myndina sem ég man ekki hvað heitir,allavega er hún um fíl og fræ sagði hann mér,,Takk fyrir gott spjall Kormákur
24.3.2008 | 16:04
Þú hefur drukkið of mikið kaffi þegar...
Þú hleypur í svefni..
Þú getur ekki staðið kyrr nema í jarðskjálfta
Þú skíðar upp brekkurnarþ
Þú nagar neglur annara.
Þú svarar dyrabjöllunni áður en hún hringir.
Þú færð hraðasektir á bílastæðum.
Þú ferð á AA fundi til að fá ókeypis kaffi.
Þú gleymir að taka utan af sælgætinu áður en þú borðar það.
Þú þarft ekki á hamri að halda þegar þú rekur nagla í vegg.
Afmælisdagur þinn var gerður að þjóðhátíðardegi Brasilíu.
Þér finnst lögun skyndikaffis taka of langan tíma.
Kaffibrúsinn þinn er á hjólum.
Þú geymir fölsku tennurnar þínar í kaffi á nóttunni.
Þú lætur kettina þína heita Kaffirjóma og Molasykur.
Þú talar reiprennandi Arabísku án þess að hafa lært hana.
Þú ert með mynd af kaffikrúsinni þinni.....á kaffikrúsinni þinni.
Þú reiðist ekki,þú verður sjóðandi vondur.
Þú nærð ekki lit á sólarströnd,heldur brennslu.
Kaffikrúsin þín er tryggð hjá Lloyds í London
..............Jamm þá hafið þið það...passið ykkur bara á kaffinu
24.3.2008 | 15:35