Orðabók hvað..........

Uppfærð handbók starfsmannsins.
Reglur þessar taka nú þegar gildi.
Starfsmannafatnaður:
Það er ætlast til þess að þú komir klædd/ur  í vinnuna þína í samræmi við
launatekjur þínar.
Ef þú mætir klædd/ur í 40 þúsund króna Prada strigaskóm eða ert með 80
þúsund króna Gucci handtösku, gerum við ráð fyrir að þú sért á nógu góðum
launum og þurfir alls enga launahækkun.  Ef þú kemur fátæklega klædd/ur
biðjum við þig að fara betur með peningana þína, svo þú getir keypt þér
betri/fallegri föt.
Ef þú aftur á móti ert einhvers staðar þarna á milli ert þú sennilega á
réttum stað og þarft enga launahækkun.
Veikindadagar:
Við tökum ekki lengur á móti læknisvottorðum. Ef þú getur farið til læknis
og fengið hjá honum vottorð, geturðu alveg eins mætt í vinnu.
Aðgerð:
Uppskurðir/aðgerðir eru nú bannaðar. Svo lengi sem þú ert starfsmaður hérna,
þarftu á öllum þínum líffærum að halda og ættir þess vegna alls ekki að láta
fjarlægja neitt. Þú varst ráðinn með öll líffæri og ef það breytist á
einhvern hátt er það brot á ráðningasamningi þínum.
Persónulegt leyfi fyrir utan orlof.
Hver launþegi fær 104 daga á ári til að sinna einkaerindum. Þessir dagar eru
kallaðir laugardagar og sunnudagar.
Orlofsdagar:
Allir starfsmenn eiga að taka orlofsdagana sína á sama tíma á hverju ári.
Þeir dagar eru
24 desember (e.hádegi)25 desember, 26 desember,  31 desember
(e.hádegi) 1 janúar, skírdagur, föstudagurinn langi, annar í páskum, og
frídagur verslunarmanna.  Og eftirtaldir dagar ef þeir bera upp á virkan
dag.  1 maí og 17 júní.
Fjarvera vegna jarðarfara:
Það er ekki til nein afsökun fyrir því ef þú mætir ekki í vinnu. Það er
ekkert sem þú getur heldur gert fyrir látna vini, ættingja eða
samstarfsfólk. Reyna ætti af öllum mætti að láta aðra sjá um að mæta í
jarðaför viðkomandi. Í sérstökum undantekningar tilvikum þar sem starfsmaður
verður að mæta, skal jarðaförin tímasett seinnipart dags.
Okkur er sönn ánægja að leyfa viðkomandi starfsmanni að vinna matartímann
sinn upp í þær stundir sem hann yrði væntanlega fjarverandi.
Fjarvera vegna eigin dauða:
Þetta er líklega eina fjarveran sem við tökum til greina. Samt sem áður er
ætlast til þess að starfsmaður gefi okkur alla vega tveggja vikna fyrirvara
svo hægt sé að aðlaga og taka nýjan starfskraft inn í þitt starf.
W.C ferðir:
Allt of mikill tími fer í salernisferðir hjá starfsmönnum. Í framtíðinni
verður þannig hátturinn á að að nota stafrófið sem hjálpartæki. T.d nöfn sem
byrja á "A" eiga að nota salernið frá 08:00-08:20, nöfn sem byrja á "B" frá
08:20-08:40 og svo frv. Ef svo óheppilega vill til að þú eihverra hluta
vegna kemst ekki á salernið á umsömdum tíma verður þú að bíða næsta dags. Í
algjörum neyðartilfellum, mega starfsmenn þó skipta út sínum tíma. Þá verður
það að vera skriflegt og undirskrifað af ykkar verkstjórum.
Hámarkstími eru 3 mín, og ef þú ferð yfir þann tíma mun hringing fara í
gang, klósettrúllan rúllast upp til baka, dyrnar verða opnaðar og af þér
verður tekin mynd. Hún verður síðan sett upp á auglýsingatöflu öðrum til
varnaðar.
Hádegisverðarhlé:
Mjög grannt fólk fær 30 mínútna hádegisverðarhlé, þar sem það verður að
borða meira og líta betur út. Fólk í kjörþyngd fær 15 mínútna
hádegisverðarhlé, og fær tækifæri á að borða sinn mat til að viðhalda góðri
líkamsþynd. Feitt fólk fær 5 mínútna hádegisverðarhlé,  sem er fullnægur
tími til að drekka Herbalife og taka inn megrunartöfluna sína.
Svo þökkum við ykkur fyrir tryggð við fyrirtækið. Við erum til staðar og
reynum að skapa skemmtilegan og jákvæðan starfsmanna - móral. Þess vegna
óskum við eftir því að allar spurningar, athugasemdir, áhyggjur, kvartanir,
ásakanir, illska og leiðindi  verði beint eitthvað annað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Frábær orðabók,takk fyrir.Ég er svo feitur að ég fæ engan matartíma.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 11.9.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Já þar fór matar tíminn. Knús Gulla mín.

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 06:57

3 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.9.2008 kl. 17:39

4 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

ég held bara áfram að þvo mitt þvott á laugardögum :)

Ester Sveinbjarnardóttir, 13.9.2008 kl. 23:26

5 identicon

Ekki vildi ég vinna á þessum vinnustað!   Knús á þig Gulla mín

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 14:14

6 Smámynd: Linda litla

 miðað við þennan pistil, þá á ég ekki rétt á matartíma.

Hvernig gengur annars með að skrifa í bókina góðu ?? Ertu ennþá jafndugleg við það ??

Linda litla, 16.9.2008 kl. 23:04

7 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Hvaða bók hajá svona reyni það svona eftir því sem ég man

Guðný Einarsdóttir, 17.9.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband