Saga dagsins

Kæru vinir
 Sendi ykkur sögu dagsins til umhugsunar. Knúskveðjur frá mér
 
 
 Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á
blað.  Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á
milli.
 Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og
skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau
blöðunum til
 kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og
safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.  Síðan fengu
nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu  þetta urðu
þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
 skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona
miklu  máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín
á
milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir
urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
 
 Lífið hélt áfram.
 
 Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn
ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til
hennar og
 spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði
talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og
vildu sýna
 henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og
var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem
kennarinn
 hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera
þetta,því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir
Magnúsar.
 Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði
fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var
eitt af
Því sem þeim þótti vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist
hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því
að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.
 
 Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að
lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur
verður. Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað
þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það
oft áður en það  verður of seint.
 
 Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það
ekki þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir
þá sem eru þér mikilvægir. Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af
því að einhverjum þykir vænt um þig og að alla vega einni persónu finnst
þú vera mikilvæg/ur. Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini
þína. Mundu að þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur
einhverjum. Vona að dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir
miklu máli!
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Þetta er yndislegt..... þú ert yndisleg.

Linda litla, 12.3.2008 kl. 21:49

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

þetta er flott..

Agnes Ólöf Thorarensen, 12.3.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband