18.2.2008 | 23:27
Búin að blóta
Búin að blóta þetta árið,jamm það var þorrablót hér á laugardagskvöldið,assgoti gott blót,góður matur auðvitað góð skemmtiatriði og bara góð hljómsveit,engat eru því miður myndirnar,því myndavélin gleymdist heima eins og fl. Og bara láta vita ég féll ekki í freystni þó svo ég hafi gleymt að setja á mig plástur,borðaði á mig gat,drakk slatta af brennivíni,dansaði og slóst við stóla,en því miður höfðu stólarnir betur og slengdu mér í gólfið
en ég er lifandi,en það sér þó á mér eftir stólkvikyndið ætti bara að kæra hann haha
Fór í tvö barna-afmæli í gær,tvíburarnir urðu 13 ára í gær,og bölkuðu skvísurnar vöfflur handa liðinu,hún Berglind kallaði okkur systkynin og þeirra maka UPPVAKNINGA haha vorum eitthvað hálf mygluð öll,en samt leið mér nú ekkert illa,núbb svo fór ég til Halldóru hún var að halda upp á afmæli hjá Höllu næst yngsta barninu,þannig að ekki get ég sagt að ég hafi léttst mikið þessa helgi bara alls ekkert eiginlega bara,eða annars veit ég það ekki ætla bara ekkert að vera að stía á þessa vog,ekki strax allaveg
Jæja þá er það ákveðið að ég fer til Slóvaníu í maí og verð í viku kem heim á mínum degi 1 júní,þetta var ákveðið í dag en búið að vera í deigluni svona í nokkra daga
Gekk vel í vinnuni í dag fáir karlar eiginlega í hádeginu fannst mér var samt ekki búin fyrr en kl 2..svo er það sjúkraþjálfun í fyrramálið,held að sjúkraþjálfin verði ekki sérstaklega ánægð með hnéð á mér huhh,það er stokkbólgið og marið eftir slagsmálin við stólfíflið....................... Bless að sinni
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
SLÓVENÍU ??? Og hvað ??? Með hverjum ferðu ?? Ekki ferðu ein ??
Linda litla, 18.2.2008 kl. 23:29
Slóveníu!!!!!!!- hvernig væri að manni væri leyft að fylgjast með svona fæðingum.......koma svona aftan að manni -búið að ákveða allt og allt kræst sko
Dísaskvísa, 18.2.2008 kl. 23:43
He he djók-þetta verður fjör hjá þér........passaðu þig samt á stólunum þar, hef heyrt að þeir séu mun verri en íslensku stólarnir!!!!!
Dísaskvísa, 18.2.2008 kl. 23:44
Eldri borgurum haha nei Þrem öðrum konum allar frá Ægissíðu Dúnna,Gunna og Stína..
Guðný Einarsdóttir, 18.2.2008 kl. 23:47
Æðislegt, og er þér boðið ?? Er þetta afmælisgjöf ??
Linda litla, 19.2.2008 kl. 00:12
Ja það veit ég ekki,held að ég borgi sjálf
Guðný Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 00:19
Heldurðu að þú borgir sjálf ??? Núna er ég ekki alveg að skilja þig mín kæra....
Linda litla, 19.2.2008 kl. 00:39
Já auðvita borga ég, ég á ekkert stórt afmæli núna
ég vildi fara í þessa ferð og þá borga ég auðvitað
Aha ætlar þú kannski að borga
Guðný Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 00:41
HAHA reyndu bara næst að slást við kolla það er miklu betra!
Mín veröld, 19.2.2008 kl. 00:47
Björk ? Hvað eða hver er "kolla" ??
Gulla: Sorry, mig minnti að stórafmælið væri í ár.... ég er alltaf að ruglast, sorry again.
Linda litla, 19.2.2008 kl. 01:26
Ekki gera mig gamla fyrir
aldur framm
Guðný Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 02:23
Nei, það var ekki ætlunin Gulla mín. Ég er að gera mig gamla með því að vera svona gleymin.
Linda litla, 19.2.2008 kl. 07:04
hehe..það er alltaf jafn gaman að lesa orðaskakið á ykkur vinkonunum...ég skemmti konunglega...haha..og Linda.!!!!!....KOLLUR...er stóll....heheh...ég verð ekki eldri...


Agnes Ólöf Thorarensen, 19.2.2008 kl. 08:45
Kræst........ Lóa, ég las þessi tvö L út eins og í Gulla ekki í Gull. Og hélt kannski að kolli væri einhver maður eins og t.d. Gulli hahahahahaha
Þetta eru pjúra ellimerki. Ok, ég panta pláss á Hrafnistu.
Linda litla, 19.2.2008 kl. 10:59
Hahaha sumt fólk er farið að sýna ellimerki,og ekki eldri en þetta,fáðu þér kvöld-vor-rósar-olíu.eða eitthvað
Guðný Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 11:07
Er það eitthvað til að drekka ???
Linda litla, 19.2.2008 kl. 14:39
Já örugglega,veit samt ekki.Spurðu Lóu hún vinnur í apótekinu
Guðný Einarsdóttir, 19.2.2008 kl. 15:15
Lóa !! Ef að þú skildir detta hérna inn, segðu mér þá..... er það eitthvað til að drekka ??
Linda litla, 19.2.2008 kl. 23:35
OMG! það er bara fyndið að lesa þessi komment hérna hjá þér, þið eruð alveg ágætar
en hvað segiru, Slóvenía?? Ég hlýt að mega koma með, ég er frá Ægissíðu! 
Silla (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 03:39
Jájá Silla mín endilega
Guðný Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 18:27
Linda mín....Kvöld vorrósar olía er til margs brúkleg...
Agnes Ólöf Thorarensen, 20.2.2008 kl. 23:43
Til þess að drekka þá eða eitthvað annað ?? ó mæ god, þið gerið mig forvitna.... er gott bragð af henni ??
Linda litla, 21.2.2008 kl. 00:46
Veit ekki spurðu Lóu
Guðný Einarsdóttir, 21.2.2008 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.