19.12.2007 | 17:45
Smá blogg
Á ég ekki að reyna að skrifa eitthvað hér hummeiginlega veit hreinlega ekki hvað skal skrifa um ekkert merkilegt gerst allavega ekkert sem ég veit um..Fór að hitta dokksa áðan og fékk sprautu í olbogan og það var hriiiiiikalega vonten ætti að duga mér framm yfir jól eins gott huhh....Hér er haugarigning eins og eflaust annars staðar og búið að vera myrkur í allan dag ohhh,mér eiginlega langar mest að skríða undir sæng og sofa en eins og einhver segir veðrið bíður upp á það haha.
Í gær gerðist ég ofur dugleg hihi eins og það sé eitthvað merkilegt,en bakaði slatta af flatkökum með henni mömmu minni,,,svo settum við Berglind seríu upp í tré hjá mömmu,en eitthvað klikkaði,og endaði blessuð serían í runna fyrir rest Berglind var búin að leggja þræl mikið á sig að hanga í stiga við tréð,nei svo passaði þetta ekkert með frammlengingarsnúruna svona er þetta stundumnú eru blessuð jólakortin farin að streyma inn um bréfalúgurnar ásamt öllum ruslpóstinum jeminn gaman að fá kortin en ekki hitt urrrrJæja er þetta bara ekki orðið ágætt hjá mér
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
HO HO HO !!!!
Hæ Gulla, ég kom frá Kúbunni í gær og ég er búin að vera að deyja úr kulda og eiginlega bara að sofa. Mér þætti ekki verra ef að það væri hægt að fresta jólunum um eins og eina viku, svona rétt á meðan ég er að snúa sólarhrngnum við og ná í mig hita.
Jólakortin eru einmitt farin að streyma inn hjá mér, en ég sendi ekki nein kort þetta árið. Held að ég hafi ekki gert það heldur í fyrra.
Jæja, kæra flatbrauðskona, hafðu það gott þangað til næst.
Kv. Linda litla.
Linda litla, 20.12.2007 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.